Körfubolti

KR tryggði sér sigur í síðasta leikhluta

Elvar Geir Magnússon skrifar

Einn leikur var í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. KR vann Grindavík í spennandi leik í DHL-höllinni 68-56. KR-stúlkur tryggðu sér sigurinn í fjórða leikhluta.

Grindavík var yfir 34-26 í hálfleik og hafði tveggja stiga forystu þegar síðasti leikhluti hófst. En allt gekk upp hjá KR í fjórða leikhluta á meðan leikur Grindavíkur hrundi.

KR er í fjórða sæti deildarinnar með 10 stig eins og Keflavík og Hamar sem eru í næstu sætum fyrir ofan og eiga leik inni. Grindavík er með 6 stig í fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×