Fótbolti

Schuster fær lítið að vita

Elvar Geir Magnússon skrifar
Bernd Schuster.
Bernd Schuster.

Bernd Schuster, þjálfari Real Madrid, er ekki sáttur við upplýsingaflæðið til hans varðandi leikmannakaup.

Hann sagði á blaðamannafundi í dag að svo virtist vera að hann fengi að vita allt síðastur.

„Allir virðast fá að vita allt á undan manninum sem mestu máli skiptir í þessu. Ég væri til í að vita meira," sagði Schuster sem fær greinilega ekki miklu að ráða varðandi leikmannakaup félagsins.

Leikmannahópur Real Madrid er nú í Austurríki þar sem liðið er í æfingabúðum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×