Fótbolti

Oleguer til liðs við Ajax

Elvar Geir Magnússon skrifar
Oleguer er kominn til Hollands.
Oleguer er kominn til Hollands.

Ajax hefur fengið spænska varnarmanninn Oleguer frá Barcelona. Samningur Oleguer er til ársins 2011.

Þessi 28 ára leikmaður átti ekki fast sæti hjá Börsungum á síðasta tímabili.

Kauðverðið er 2,4 milljónir punda og gæti hækkað um 2 milljónir til viðbótar ef Ajax kemst í Meistaradeildina.

Oleguer á að fylla skarð John Heitinga hjá Ajax en Heitinga fór til Atletico Madrid fyrr í sumar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×