Fótbolti

Forlan frá keppni í mánuð

Diego Forlan
Diego Forlan NordicPhotos/GettyImages

Framherjinn Diego Forlan hjá Atletico Madrid verður frá keppni í um það bil mánuð vegna meiðsla á læri sem hann varð fyrir í sannfærandi 3-0 útisigri liðsins á PSV í Meistaradeildinni í gærkvöld.

Þetta þýðir að Forlan muni væntanlega missa af leik Atletico gegn Liverpool í Meistaradeildinni og verður tæpur fyrir grannaslaginn gegn Real Madrid síðar í þessum mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×