Körfubolti

NBA: Meistararnir 2-0 undir gegn New Orleans

Tyson Chandler og Chris Paul brosa sínu breiðasta, enda komnir í 2-0 gegn meisturunum
Tyson Chandler og Chris Paul brosa sínu breiðasta, enda komnir í 2-0 gegn meisturunum NordcPhotos/GettyImages

Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppninni í NBA deildinni í nótt. Detroit náði 2-0 forystu gegn Orlando og New Orleans vann öruggan sigur á meisturum San Antonio.

Lið New Orleans heldur áfram að koma á óvart og eftir jafnan fyrri hálfleik annars leiks liðsins gegn San Antonio í nótt, stakk liðið af í þriðja leikhlutanum sem það vann 36-18 og eftir það var sigurinn aldrei í hættu. Lokatölur 102-84 fyrir New Orleans.

Chris Paul skoraði 30 stig og gaf 12 stoðsendingar - og sýndi götuboltatilþrif hvað eftir annað þegar hann prjónaði sig í gegn um vörn meistaranna. Peja Stojakovic bætti við 25 stigum fyrir New Orleans, þar af fimm þristum.

New Orleans er þar með fyrsta liðið síðan árið 2001 sem nær að komast í 2-0 forystu gegn San Antonio í seríu í úrslitaleppni, en það gerði síðast meistaralið LA Lakers á sínum tíma og vann reyndar einvígið 4-0.

Tim Duncan var atkvæðamestur í liði San Antonio með 18 stig og 8 fráköst, Manu Ginobili skoraði 13 stig og Tony Parker aðeins 11.

Næsti leikur fer fram í San Antonio á fimmtudagskvöldið, en þar er ljóst að heimamenn verða heldur betur að finna taktinn eftir tvo slaka leiki í New Orleans.

Detroit komst í 2-0 gegn Orlando

Detroit Pistons varði heimavöllinn sinn gegn Orlando og náði 2-0 forystu í einvígi liðanna í nótt með 100-93 sigri.

Chauncey Billups skoraði 28 stig fyrir Detroit í sigrinum, en umdeild þriggja stiga karfa sem hann skoraði undir lok þriðja leikhluta olli miklum deilum vegna meintra mistaka á ritaraborði.

Sigur Detroit var þó langt frá því að vera auðveldur og var það téður Billups sem tryggði heimamönnum endanlega sigurinn með tveimur vítaskotum þegar tæpar 11 sekúndur voru eftir af leiknum.

Rasheed Wallace og Tayshaun Prince skoruðu 17 stig hvor fyrir Detroit.

Dwight Howard skoraði 22 stig og hirti 18 fráköst fyrir Orlando, Jameer Nelson skoraði 22 stig og Rashard Lewis 20 stig.

Leikur þrjú í seríunni er í Orlando á miðvikudagskvöldið.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×