Sport

Sharapova úr leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Maria Sharapova var niðurlút á vellinum í dag.
Maria Sharapova var niðurlút á vellinum í dag. Nordic Photos / Getty Images
Maria Sharapova frá Rússlandi féll í dag óvænt úr leik á Wimbledon-mótinu í tennis. Hún tapaði fyrir löndu sinni, Öllu Kudryavtsevu, í tveimur settum, 6-2 og 6-4.

Þetta er í fyrsta sinn sem Sharapova nær ekki að komast í fjórðu umferð mótsins þegar hún tekur þátt í því. Sharapova sigraði á mótinu árið 2004.

Kudryavtseva er tvítug að aldri og númer 154 á heimslistanum þar sem Sharapova er í þriðja sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×