Fótbolti

Laporta hefur viðræður vegna Arshavin

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Andrei Arshavin í leik með rússneska landslðinu.
Andrei Arshavin í leik með rússneska landslðinu. Nordic Photos / AFP

Joan Laporta, forseti Barcelona, hefur hafið formlegar viðræður við Zenit St. Pétursborg vegna Andrei Arshavin.

Þetta kemur fram í Marca í dag. Arshavin sló í gegn á EM 2008 og sagði að hans heitasta ósk væri að ganga til liðs við Barcelona. Hann var í dag valinn í lið mótsins af Knattspyrnusambandi Evrópu.

Arshavin hefur verið á mála hjá Zenit allan sinn atvinnumannaferil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×