Fótbolti

Diarra á leið í aðgerð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mahamadou Diarra í leik með Real Madrid.
Mahamadou Diarra í leik með Real Madrid. Nordic Photos / AFP

Mahamadou Diarra, leikmaður Real Madrid, mun gangast undir aðgerð á hné á morgun. Verður hann frá af þeim sökum frá tveimur upp í allt að sex mánuðum.

Diarra mun gangast undir speglunaraðgerð á hné eftir að hann kenndi sér meins á æfingu með liðinu.

Leikmenn Real Madrid hafa margir hverjir átt við ítrekuð meiðsli að stríða en liðið er sem stendur í fjórða sæti spænsku úrvalsdeildarinnar.

Ruud van Nistelrooy verður frá það sem eftir lifir tímabils vegna hnémeiðsla og hefur Klaas Jan Huntelaar verið fenginn í hans stað.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×