Fótbolti

Sport birtir "innkaupalista" Barcelona

Sport vill meina að Barcelona ætli sé rað ná í Alex Hleb hjá Arsenal
Sport vill meina að Barcelona ætli sé rað ná í Alex Hleb hjá Arsenal NordcPhotos/GettyImages

Spænska dagblaðið Sport telur í dag upp alla þá leikmenn sem það telur víst að séu á innkaupalista Barcelona í sumar. Listinn er langur og skrautlegur.

Sport segir að þrír af þessum mönnum séu nánast öruggir um að lenda hjá Barcelona, en það eru varnarmaðurinn Gerard Pique hjá Manchester United og Sevilla mennirnir Daniel Alves og Seydou Keita.

Þetta eru ekki einu nöfnin á tilkomumiklum innkaupalista Katalóníufélagsins að mati blaðsins, því þar má finna nöfn eins og Fabricio Coloccini hjá Deportivo og Alex Hleb hjá Arsenal, en þessir eru sagðir mjög eftirsóttir af félaginu.

Þá er sérstakur hópur manna sem falla undir "kannski" hlutann á innkaupalistanum.

Þar eru nöfn eins og David Silva hjá Valencia, Florent Malouda hjá Chelsea, Karim Benzema hjá Lyon, Emmanuel Adebayor hjá Arsenal og Dimitar Berbatov hjá Tottenham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×