Fótbolti

Eiður Smári er túlkur fyrir Hleb

Elvar Geir Magnússon skrifar
Eiður Smári og Henry sjá um að Hleb skilji allt sem fram fer á æfingum Barcelona.
Eiður Smári og Henry sjá um að Hleb skilji allt sem fram fer á æfingum Barcelona.

Alexander Hleb er fullur tilhlökkunar fyrir komandi tímabil á Spáni en hann gekk til liðs við Barcelona frá Arsenal á dögunum. Eiður Smári Guðjohnsen og Thierry Henry eru túlkar fyrir Hleb á æfingum.

„Í London voru hlutirnir öðruvísi en það er sífellt verið að kenna mér hvernig hlutirnir ganga fyrir sig hérna," sagði Hleb sem er frá Hvíta-Rússlandi.

Eiður Smári og Henry sjá til þess að Hleb skilji það sem Pep Guardiola, nýr þjálfari Börsunga, er að segja við leikmenn. Þá hlakkar Hleb mikið til þess að fá jólafrí en á Spáni er ekki spilað yfir hátíðarnar ólíkt Englandi.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×