Sport

Systurnar leika til úrslita á Wimbledon

NordcPhotos/GettyImages

Það verða bandarísku systurnar Venus og Serena Williams sem leika til úrslita í kvennaflokki á Wimbledon mótinu í tennis á morgun. Þetta varð ljóst í gærkvöld eftir að Serena lagði kínversku stúlkuna Zheng Jie 6-2 og 7-6 (7-5) í undanúrslitum.

Þetta verður í þriðja skipti sem þær systur mætast í úrslitaleik á þessu sögufræga móti. Serena hefur tvisvar unnið sigur á mótinu, en Venus, sem á titil að verja, er nú í úrslitum í sjöunda sinn. Þær mættust síðast í úrslitaleik Wimbledon árið 2003. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×