Fékk gott tilboð en verður áfram í Hólminum 30. maí 2008 20:59 Hlynur Bæringsson verður áfram maðurinn í miðjunni í Hólminum
Landsliðsmaðurinn Hlynur Bæringsson segist fastlega reikna með því að hann spili með Snæfelli áfram næsta vetur. Vísir hefur heimildir fyrir því að Stjörnumenn hafi reynt að fá Hlyn í sínar raðir í vor. Hlynur vildi ekki staðfesta að forráðmenn Stjörnunnar hefðu sett sig í samband, en sagðist þó hafa orðið var við áhuga frá öðrum félögum eins og svo oft áður. Hann er hinsvegar staðráðinn í að halda áfram með Snæfelli nema hann fengi hugsanlega bitastætt tilboð erlendis frá. "Það er nokkuð ljóst að ef ég verð hérna á Íslandi, þá verð ég áfram í Hólminum nema eitthvað alveg sérstakt komi til. Maður er búinn að koma sér svo vel fyrir hérna, sveitamaðurinn," sagði Hlynur. Hann játar að hafa fengið eitt áhugavert tilboð. "Það fékk mann aðeins til að hugsa, ég neita því ekki," sagði Hlynur. "En það er nú líka þannig að þegar menn eru búnir að gera vel við mann eins og hér í Stykkishólmi, þá finnst manni ekki endilega ástæða til að rjúka til þó eitthvað aðeins betra bjóðist," sagði Hlynur. Hann er ekki búinn að loka á að reyna fyrir sér erlendis á ný. "Það er eitthvað sem ég er alltaf opinn fyrir, en maður yrði þá að vanda valið. Þetta Hollands-ævintýri á sínum tíma var nú svo sem ekki ferð til fjár," sagði Hlynur léttur í bragði. Hlynur mun leika undir stjórn hins reynda Jordanco Davitkov næsta vetur, en hann stýrði áður landsliði Makedóníu. Hann fær það verkefni að taka við af Geof Kotila sem stýrði Snæfelli tvö ár þar á undan. "Það sjá allir mikið eftir Geof og hann kenndi okkur mikið. Hann var líklega besti þjálfari sem ég hef spilað fyrir á ferlinum með fullri virðingu fyrir öðrum og þar er á ferðinni maður sem náð hefur fínum árangri," sagði Hlynur.
Dominos-deild karla Mest lesið Pabbinn fékk tattú á punginn Sport Ætlar sér að vinna heimsleikana í Crossfit Sport Fáránlegt hneyksli ofurhlaupara: Breyttu Wikipedia-síðum Sport Átján ára hjólreiðakona í lífshættu Sport Man United stefnir á að vinna ensku úrvalsdeildina árið 2028 Enski boltinn Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Körfubolti Bestu guttarnir í Bestu deild karla Íslenski boltinn Ricciardo tapar sæti sínu hjá RB Formúla 1 Samherji Stefáns Teits kærður fyrir meint bit Enski boltinn Sakar andstæðing um að stela þjálfaranum sínum Sport Fleiri fréttir Pavel nýr liðsmaður Bónus Körfuboltakvölds Helena verður á skjánum í vetur Derrick Rose leggur skóna á hilluna Mögnuðu tímabili nýliðans Clark lokið: „Get orðið miklu betri“ Æfir eftir stæla þjálfarans og banna leikmenn í landsliðið Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Sjá meira