Fótbolti

Etxeberria ætlar að spila frítt

Gamla kempan Joseba Etxeberria hjá Atletic Bilbao á Spáni hefur lofað að spila síðasta tímabil sitt með félaginu launalaust. Þetta ætlar hann að gera til að þakka félaginu fyrir þá hollustu sem sér hafi verið sýnd á 13 ára ferli sínum.

Etxeberria tilkynnti í gær að hann ætlaði að leggja skóna á hilluna eftir næsta tímabil. Hann hefur verið í liði Baskaliðinu síðan hann var 17 ára gamall.

Hann á að baki 473 leiki og hefur skorað í þeim 101 mark og sagðist vonast til að ná að spila 500 leiki fyrir félagið áður en hann hætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×