Fótbolti

Vandræði í varnarleik Real

Bernd Schuster
Bernd Schuster NordicPhotos/GettyImages

Bernd Schuster þjálfari Real Madrid segist engin svör hafa við lélegum varnarleik liðsins í undanförnum leikjum. Real var slegið út úr Konungsbikarnum í vikunni þegar það gerði jafntefli við smáliðið Real Union.

Stórliðið hefur fengið á sig átta mörk í þremur heimaleikjum á einni viku og hefur það orðið til þess að varpa gagnrýni á þýska þjálfarann.

"Þjálfarinn veit ekki hvað er að varnarleiknum hjá okkur. Það væri nær að spyrja okkur leikmennina. Real Union skoraði sex mörk á okkur og við verðum að leita svara við því," sagði varnarmaðurinn Michel Salgado.

Gulldrengurinn Raul náði þeim merka áfanga að skora sitt 300. mark fyrir félagið þegar hann skoraði þrennu í leiknum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×