Sport

Örn hvíldi í morgun

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Örn Arnarson sundkappi.
Örn Arnarson sundkappi.

Örn Arnarson keppti ekki í 100 metra skriðsundi á EM í sundi í Hollandi í morgun eins og til stóð. Hann hvíldi þar sem hann keppir í úrslitum 50 metra baksunds í kvöld.

Baksundið er sterkasta grein Arnar og því kemur ekki á óvart að hann hafi ákveðið að hvíla sig nú.

Hann er eini íslenski keppandinn sem keppir í dag en þau Jakob Jóhann Sveinsson og Sigrún Brá Sverrisdóttir verða í eldlínunni á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×