Fótbolti

Leikmenn Real biðja forsetann að slaka á

Calderon er ákafur stuðningsmaður
Calderon er ákafur stuðningsmaður NordcPhotos/GettyImages

Leikmenn Real Madrid hafa farið þess á leit við forseta félagsins að hann slaki á sífelldum yfirlýsingum sínum um liðið í fjölmiðlum.

Ramón Calderón hefur verið duglegur að lýsa yfir eigin áformum um liðið í fjölmiðlum í vetur og hefur m.a. lofað því að liðið verði meistari og að það færi alla leið í úrslitaleikinn í Meistaradeildinni.

Þetta þykir leikmönnum skapa óþarfa pressu í herbúðum liðsins, enda er pressan alltaf yfirdrifin á Santiago Bernabeu.

Forsetinn er ólíkt forvera sínum mikill og ákafur aðdáandi liðsins og fer oft inn í búningsklefa og talar við leikmennina eftir leiki, en þeir hafa nú beðið hann á að slaka aðeins á í þeim efnum samkvæmt fréttum frá Spáni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×