Íslenski boltinn

Öruggur sigur á Portúgal

Elvar Geir Magnússon skrifar
Kvennalandsliðið vann Portúgal.
Kvennalandsliðið vann Portúgal.

Íslenska kvennalandsliðið vann Portúgal 3-0 í lokaleik sínum í riðlakeppni Algarve Cup. Með þessum sigri tryggði Ísland sér efsta sæti riðilsins og mun leika um sjöunda sæti mótsins.

Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk, bæði í fyrri hálfleiknum, og það var síðan Katrín Jónsdóttir sem bætti þriðja markinu við í seinni hálfleiknum.

Katrín jafnaði landsleikjamet Ásthildar Helgadóttur en hún lék 69. landsleik sinn í dag. Finnar verða mótherjar íslenska liðsins í leiknum um sjöunda sætið en leikurinn verður á miðvikudag.

Byrjunarlið íslenska liðsins: Guðbjörg Gunnarsdóttir (m), Ólína Viðarsdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, Katrín Jónsdóttir (f), Edda Garðarsdóttir, Erla Steina Arnardóttir, Sara Björk Gunnarsdóttir, Rakel Hönnudóttir, Guðný Björk Óðinsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×