Sport

Marion Jones hefur fangelsisvist

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Marion Jones gengur úr réttarsalnum á sínum tíma.
Marion Jones gengur úr réttarsalnum á sínum tíma. Nordic Photos / Getty Images

Marion Jones hóf í gær fangelsisvist sína í Fort Worth í Texas eftir að hún var dæmd í sex mánaða fangelsi fyrir að borið ljúgvitni og tekið þátt í samsæri um neyslu ólöglegra lyfja.

Jones er 32 ára gömul og játaði sekt sína í þeirri von um að hún myndi ekki þurfa að fara í fangelsi. Það bar þó ekki tilætlaðan árangur.

Hún er tveggja barna móðir og fimmfaldur Ólympíumeistari en öll þau verðlaun hafa nú verið tekin af henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×