Fótbolti

Forseti Lyon ósáttur við Ferguson

Nordic Photos / Getty Images

Jean-Michel Aulas, forseti franska félagsins Lyon, segir Alex Ferguson hjá Manchester United vera að reyna að koma framherjanum magnaða Karim Benzema úr jafnvægi með því að lýsa yfir áhuga á honum í blaðaviðtölum.

Benzema skoraði gegn United í fyrri leik liðanna í 16 liða úrslitum Meistaradeildarinnar á dögunum og uppskar hrós frá Ferguson. Benzema hefur verið orðaður við nokkur stórlið í Evrópu að undanförnu, ekki síst Englandsmeistarana.

"Ef við sýnum einhverjum leikmanni áhuga meðan á deildarkeppninni stendur, sérstaklega frá öðru frönsku félagi - verður allt vitlaust. En nokkrum dögum áður en við spiluðum við United las ég hér og þar í blöðum að félagið hefði áhuga á Benzema - er það ekki að reyna að koma honum úr jafnvægi?" sagði forsetinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×