Erlent

Verðlaunamynd úr stríðinu í Afganistan

Óli Tynes skrifar
Þreyta og ótti á vígvellinum.
Þreyta og ótti á vígvellinum. MYND/Tim Heatherington/Vanity Fair

Mynd af örþreyttum bandarískum hermanni í Afganistan hefur verið valin fréttaljósmynd ársins 2007 hjá World Press Photo Award. Myndina tók breski ljósmyndarinn Tim Hetherington.

Heatherington var í eina viku í einni af útvarðarstöðvum bandaríska herliðsins í Afganistan. Varðstöðin var undir látlausum árásum talibana dag og nótt. Hermennirnir voru því örþreyttir. Mynd Heatheringtons þykir sýna með einstökum hætti bæði þreytuna og óttann sem því fylgir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×