Fótbolti

Raul og Casillas klára ferilinn hjá Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Raul og Iker Casillas á æfingu hjá Real Madrid.
Raul og Iker Casillas á æfingu hjá Real Madrid. Nordic Photos / AFP

Markvörðurinn Iker Casillas hefur samið við Real Madrid til ársins 2017 og framherjinn Raul til 2011.

„Þeir hafa báðir samþykkt að ljúka sínum ferli hjá Real Madrid," sagði Roman Calderon, forseti Real Madrid.

Báðir hafa lengi leikið með félaginu og eiga að baki samtals meira en 800 leiki.

„Í dag er Valentínusardagur og geta því Iker, Raul og Real játað ást sína hver á öðrum," sagði Calderon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×