Sport

Guðmundur deildarmeistari í Svíþjóð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðmundur Stephensen borðtenniskappi.
Guðmundur Stephensen borðtenniskappi. Mynd/Daníel
Guðmundur Stephensen varð í gær deildarmeistari með félagi sínu, Eslövs, í sænsku úrvalsdeildinni í borðtennis.

Í gær gerði liðið 4-4 jafntefli við Gröstorp/Österien og vann Guðmundur báða sína leiki.

Eslövs er komið með 32 stig eftir átján umferðir en að deildakeppninni lokinni keppa efstu fjögur liðin í úrslitakeppni um meistaratitilinn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×