Erlent

Edwards hættur við forsetaframboð

Óli Tynes skrifar
John Edwards bjartsýnn fyrir forkosningarnar í september á síðasta ári.
John Edwards bjartsýnn fyrir forkosningarnar í september á síðasta ári. MYND/AFP

John Edwards hefur hætt við forsetaframboð sitt. Þá eru aðeins eftir þau Hillary Clinton og Barack Obama sem keppa um útnefningu demokrataflokksins fyrir forsetakosningarnar.

Edwards hefur ekki enn sagt hvort þeirra hann styðji.

Edwards tilkynnti um ákvörðun sína eftir að hann hafði orðið undir í öllum fjórum ríkjunum sem hafa haldið forkosningar til þessa.

Edwards er fyrrum ríkisstjóri í Norður-Karólínu. Hann átti aldrei raunhæfan möguleika á að sigra í forkosningunum. Engu að síður þótti hann standa sig vel í baráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×