Körfubolti

Paul fór á kostum í stórsigri New Orleans

Chris Paul var hársbreidd frá því að ná þrefaldri tvennu gegn Denver
Chris Paul var hársbreidd frá því að ná þrefaldri tvennu gegn Denver Nordic Photos / Getty Images

Leikstjórnandinn Chris Paul fór á kostum í nótt þegar New Orleans vann níunda leik sinn í röð í NBA deildinni. Liðið rótburstaði Denver á heimavelli 117-93 í leik sem var í raun ekki spennandi nema í tíu mínútur, slíkir voru yfirburðir heimamanna.

New Orleans er heitasta liðið í NBA deildinni í dag og það var hinn ungi Paul sem fór fyrir sínum mönnum í nótt eins og svo oft áður í vetur. Hann skoraði 23 stig, gaf 17 stoðsendingar og hirti 9 fráköst, Peja Stojakovic skoraði 19 stig og Tyson Chandler skoraði 10 stig og hirti 16 fráköst.

Leikurinn var sýndur beint á NBA TV rásinni og var hin besta skemmtun.

Áhorfendur í New Orleans hylltu Chris Paul og risu úr sætum og klöppuðu þegar Chris Paul var tekinn af velli í lokin. Þeir hrópuðu "MVP, MVP" og vísuðu til þess að hann væri að þeirra mati verðmætasti leikmaður deildarinnar. New Orleans er í efsta sæti Vesturdeildarinnar með 32 sigra og aðeins 12 töp.

Paul var hógvær eftir leikinn og hafði meiri áhyggjur af því að koma þjálfarateymi sínu í stjörnuleikinn í næsta mánuði en að komast þangað sjálfur.

"Það eina sem ég er að hugsa um núna er að koma þjálfurunum í stjörnuleikinn. Ég er ekki að skoða stöðuna á hverjum degi, en það yrði frábært ef Byron Scott þjálfari færi í stjörnuleikinn," sagði Paul.

Það er þjálfarinn sem er með besta vinningshlutfallið í Vesturdeildinni um mánaðamótin sem fær að stýra liði vesturstrandarinnar í stjörnuleiknum og þar á Scott góða möguleika að komast að. Þegar er ljóst að Doc Rivers, þjálfari Boston, muni stýra liði Austurdeildarinnar.

Denver var sem fyrr án framherjans Carmelo Anthony sem er meiddur á ökkla, en líklegt þykir að hann verði með í næsta leik. Þetta var annað tap Denver í röð. Allen Iverson var stigahæstur hjá gestunum með 23 stig og Kenyon Martin skoraði 18 stig og hirti 9 fráköst.

Carlos Boozer og Deron Williams fóru fyrir liði Utah í sigrinum á San Antonio. Liðið hafði aðeins unnið 4 af síðustu 28 leikjum sínum gegn Spurs í deildinniNordicPhotos/GettyImages

Utah í toppsætið í Norðvesturriðlinum

Utah Jazz vann góðan sigur á San Antonio á heimavelli sínum í Salt Lake City í nótt 97-91. Þetta var níundi heimasigur Utah í röð og er liðið með næst besta árangur deildarinnar á heimavelli. Það hefur heldur snúið við blaðinu í janúar eftir afleitan desembermánuð og hefur aðeins tapað tvisvar á árinu 2008.

Carlos Boozer skoraði 23 stig, hirti 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Utah, Andrei Kirilenko hitti úr 9 af 10 skotum sínum og skoraði 23 stig og Deron Williams gaf 14 stoðsendingar. Utah leiddi frá fyrstu mínútu í leik sem var á tíðum nokkuð fast leikinn.

San Antonio tapaði þarna fyrsta leik sínum af níu á erfiðu ferðalagi næstu þrjár vikurnar. Tim Duncan skoraði 26 stig og hirti 11 fráköst en enginn annar byrjunarliðsmaður skoraði meira en 5 stig fyrir San Antonio. Manu Ginobili skoraði 29 stig af bekknum.

San Antonio hafði góða möguleika til að komast inn í leikinn í fjórða leikhlutanum, en þá missti Ime Udoka stjórn á skapi sínu og lét kasta sér í bað með tvær tæknivillur. Það gerði út um vonir meistaranna.

Dallas vann fjórða leikinn í röð með því að leggja slakt lið Memphis á útivelli 103-84. Josh Howard skoraði 26 stig fyrir Dallas og Dirk Nowitzki skoraði 20 stig og hirti 11 fráköst. Denver var án leikstjórnandans Devin Harris í leiknum sem missir úr næstu 2-3 vikurnar vegna meiðsla. Rudy Gay var atkvæðamestur heimamanna með 18 stig og Kyle Lowry skoraði 17 stig.

Loks vann Charlotte fjórða útileikinn sinn í vetur þegar það skellti LA Clippers 107-100 í Los Angeles. Gerald Wallace var bestur í liði Charlotte með 23 stig og 8 stoðsendingar en Tim Thomas skoraði 29 stig og hirti 13 fráköst fyrir Clippers.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×