Körfubolti

Stjarnfræðileg útgjöld Shaquille O´Neal

Shaquille O´Neal eyðir 830 þúsund krónum í mat á mánuði
Shaquille O´Neal eyðir 830 þúsund krónum í mat á mánuði Nordic Photos / Getty Images

Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami hefur rakað inn hærri launatekjur en nokkur annar körfuboltamaður í sögunni. Það er kannski eins gott, því mánaðarleg útgjöld hans skipta tugum milljóna. Hann greiðir til dæmis rúmlega 1700 þúsund krónur á mánuði - bara fyrir barnapíur.

Nákvæmar upplýsingar um fjárhag miðherjans stóra voru teknar fyrir í fjölmiðlum fyrir nokkru í kjölfar skilnaðar hans við eiginkonuna Shaunie O´Neal. Þau skildu í september eftir fimm ára hjónaband og eiga saman fjögur börn og áttu eitt hvort áður en þau tóku saman.

Síðastliðið ár hefur því verið O´Neal erfitt, því auk skilaðarins hefur hann glímt við meiðsli og liði Miami gengur ekkert í NBA deildinni þar sem það tapaði nýverið 15 leikjum í röð.

Erfitt ár hjá Shaq

O´Neal skorar að meðaltali 14 stig og hirðir 7,8 fráköst í leik - auðveldlega lélegasta ár hins 35 ára gamla miðherja á glæstum ferli.

Hann þarf þó ekki að örvænta í peningamálunum, því árslaun hans þetta árið eru í kring um 1400 milljónir króna þegar allt er talið.

Fáir ef einhverjir körfuboltamenn í sögunni hafa rakað inn jafn háar tekjur og O´Neal ef tekið er mið af launum fyrir að spila í deildinni (þ.e. fyrir utan auglýsingasamninga og önnur viðskiptaævintýri - Michael Jordan er í algjörum sérflokki þegar kemur að slíku).

Oft er sagt að það sé dýrt að vera ríkur og Shaquille O´Neal er mjög gott dæmi um það. Fjárútlát hans eru ótrúleg.

1,6 milljón á mánuði í bensín

Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir helstu útgjaldaliði Shaquille O´Neal sem gerðir voru opinberir í kjölfar skilnaðar hans í vetur. Þetta eru tölur sem gætu fengið sjálfa Paris Hilton til að roðna.

Athugið að hér er átt við útgjöld á mánuði:

Veðskuldabréf: 10,2 milljónir króna á mánuði

Sumarfrí: 7,2 milljónir

Gjafir: 3,9 milljónir

Barnfóstrur: 1,73 milljónir

Eldsneyti: 1,6 milljónir

Húshjálp: 1,45 milljónir

Fatnaður: 1,12 milljónir

Matarkostnaður: 832,000 kr

Skattur: 32 milljónir

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×