Sport

Ivanovic og Hantuchova mætast í undanúrslitum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Hantuchova fagnar sigrinum í nótt.
Hantuchova fagnar sigrinum í nótt. Nordic Photos / AFP

Ana Ivanovic og Daniela Hantuchova mætast í undanúrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis.

Báðar kepptu þær í nótt í síðari tveimur viðureignunum í fjórðungsúrslitum í einliðaleik kvenna.

Ivanovic vann Venus Williams frá Bandaríkjunum í tveimur lotum, 7-6 og 6-4. Hantuchova fór heldur létt með hina pólsku Agnieszka Radwanska, 6-2 og 6-2.

Serbar eiga þar með tvo fulltrúa í undanúrslitum, þær Ivanovic og Jelena Jankovic sem mætir Mariu Sharapova í hinum undanúrslitaleiknum.

Sharapova er rússnesk en Hantuchova frá Slóvakíu.

Báðar undanúrslitaviðureignirnar fara fram í nótt og verða í beinni útsendingu á Eurosport.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×