Fótbolti

Real Madrid enn með sjö stiga forskot

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ruud van Nistelrooy skoraði bæði mörk Real Madrid í kvöld.
Ruud van Nistelrooy skoraði bæði mörk Real Madrid í kvöld. Nordic Photos / AFP
Real Madrid vann í dag 2-0 sigur á botnliði Levante og heldur sjö stiga foyrstu sinni í spænsku úrvalsdeildinni.

Ruud van Nistelrooy skoraði bæði mörk Real í síðari hálfleik, það fyrra úr vítaspyrnu á 76. mínútu og hitt tveimur mínútum síðar með laglegu skoti.

Levante var þó síst lakari aðilinn í leiknum og mátti Bernd Schuster, þjálfari Real, þakka fyrir stigin þrjú.

Úrslit annarra leikja í dag:

Almeria-Espanyol 1-0

Betis-Getafe 3-2

Osasuna-Racing 0-2

Valladolid-Recreativo 3-1

Villarreal-Deportivo 4-3

Zaragoza-Mallorca 2-2

Atletico-Valencia 1-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×