Sport

Hingis dæmd í tveggja ára bann

Martina Hingis.
Martina Hingis. Nordic Photos / AFP

Martina Hingis hefur verið dæmd í tveggja ára keppnisbann eftir að kókaín fannst í lyfjasýni sem var tekið á Wimbledon-mótinu í fyrra.

Hún áfrýjaði dómnum en því var hafnað. Hún þarf nú að endurgreiða verðlaunafé sitt sem hún vann sér inn á Wimbledon-mótinu.

Hingis hefur þegar tilkynnt að hún sé hætt keppni í tennis en segist engu að síður vera saklaus.

Árið 2003 hætti hún einnig keppni en sneri aftur þremur árum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×