FH vann hádramatískan sigur á Haukum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 7. desember 2008 17:07 FH-ingar fagna sigrinum í leikslok. Mynd/Steinn Vignir
FH er komið í undanúrslit Eimskips-bikarkeppni karla eftir nauman sigur á Haukum, 29-28, í Kaplakrika í dag. Leikurinn var lengst af í járnum en staðan í hálfleik var 16-14, FH í vil. FH-ingar komust svo í 29-28 þegar fjórar mínútur voru til leiksloka og var því ekkert mark skorað á síðustu mínútum leiksins. Haukar fengu þó nokkur tækifæri til að jafna og undir lok leiksins ætlaði allt að sjóða upp úr. Haukar voru að halda í sókn á lokasekúndunum þegar að Ásbjörn Friðriksson braut á Sigurbergi Sveinssyni. Sá síðarnefndi brást illa við, hrinti Ásbirni og fékk að líta rauða spjaldið fyrir. Þá varð allt vitlaust á vellinum og fékk Ólafur Guðmundsson, leikmaður FH, einnig að líta rauða spjaldið. Gísli Jón Þórisson tók aukakastið þegar að leiktíminn var útrunninn en skotið fór hátt yfir markið. Sigurbergur var markahæstur Hauka með tíu mörk en Guðmundur Pederson skoraði flest mörk FH eða sjö talsins. Ólafur Guðmundsson skoraði sex. Aron Pálmarsson skoraði fimm mörk fyrir FH en hann var tekinn úr umferð stóran hluta leiksins.Þegar þessi lið mættust í deildinni á sama stað þann 5. nóvember síðastliðinn lauk honum einnig með 29-28 sigri FH.
Íslenski handboltinn Mest lesið „Á meðan að pabbi er formaður mun ég ekki skipta um lið“ Körfubolti Rashford og 32 ára nýliði í fyrsta landsliðshópi Tuchels Enski boltinn Gjammandi áhorfandinn biður McIlroy afsökunar Golf Dorgu bað dómarann um að gefa United ekki víti Fótbolti „Kominn tími á konu í Formúlu 1“ Formúla 1 Ánægður með fullkomna fyrirliðann en segir hann þurfa að treysta samherjunum Fótbolti Róbert aðstoðar Ágúst á Hlíðarenda Handbolti Fimm skíðastökkvarar í bann eftir saumaskandalinn Sport Svona líta öll átta liða úrslitin í Evrópu út Fótbolti „Engin draumastaða“ Handbolti Fleiri fréttir Róbert aðstoðar Ágúst á Hlíðarenda „Engin draumastaða“ Alfreð fyrsti íslenski þjálfarinn til að tapa stigi Hart barist um að fylgja Íslandi á EM Gunnar tekur aftur við Haukum „Við endum í þessu þriðja sæti og þannig er bara lífið“ Gróttukonur gerðu aftur góða ferð á Selfoss Uppgjör: Fram-Haukar 26-23 | Hefndu fyrir tap í bikarúrslitaleiknum „Frábært að fá fleiri gaura inn í systemið“ „Finnst við hafa sýnt hversu góðir við erum“ Hálfleiksræða Dags kveikti á króatíska liðinu Gísli og Ómar gerðir útlægir vegna skautasýningar Uppgjörið: Grikkland - Ísland 25-34 | Sannfærandi hjá strákaunum okkar þrátt fyrir forföll Ljónin staðfesta komu Hauks rétt fyrir landsleik „Það dugar yfirleitt til að spila handboltaleik“ Velta því fyrir sér hvort fimmtán ára HK-ingur hafi skorað mark ársins Skiptir úr sálfræðinni í Duolingo Strákarnir sem mæta Grikkjum í dag: Margir aðalleikarar utan hóps „Mjög undarlegt að þessi höll standist kröfur“ Prentuðu Dag Sig og strákana hans á frímerki Aron enn einn lykilmaðurinn sem missir af Grikklandsleiknum Aldís Ásta og félagar fóru illa með liðið fyrir neðan þær í töflunni Eftirmaður Þóris segir stelpurnar þurfa að æfa sig í að senda og grípa „Við erum of mistækir“ Benedikt Gunnar kallaður inn í landsliðshópinn Stjarnan tryggði sér sæti í úrslitakeppninni Uppgjörið: FH - Afturelding 34-29 | Heimamenn endurheimtu toppsætið Björgvin Páll strax kallaður aftur í landsliðið Danski dómarinn aftur á börum af velli Valur tímabundið á toppinn Sjá meira