Körfubolti

Athyglisverð skipti milli Phoenix og Charlotte

Jason Richardson.
Jason Richardson.

Phoenix Suns skipti í gær frá sér þeim Boris Diaw, Raja Bell og Sean Singletary til Charlotte Bobcats fyrir Jason Richardson og Jared Dudley.

Þetta hljóta að teljast stórtíðindi því að þó ljóst hafi verið í nokkurn tíma að Charlotte væri að hlusta á tilboð í fyrrum troðslumeistarann Richardson, eða J-Rich, áttu fáir von á þessu.

Þar sem þessar fréttir eru glænýjar eru spekingarnir vestanhafs ekki búnir að greina skiptin ofan í kjölinn, en líklegt hlýtur að þykja að þetta tengist stöðu Amare Stoudamire, sem hefur verið ansi hvumpinn yfir stöðu sinni í liði Suns að undanförnu.

Stoudamire verður með lausan samning eftir leiktíðina 2009-2010 og má teljast líklegt að frekari tíðinda sé að vænta úr herbúðum Suns á næstunni.

Tekið af karfan.is



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×