Fótbolti

Ólga í herbúðum Barcelona

NordicPhotos/GettyImages

Mikil ólga ríkir nú í herbúðum spænska knattspyrnufélagsins Barcelona eftir að átta af sautján stjórnarmönnum þess sögðu af sér í dag til að mótmæla ákvörðun Joan Laporta forseta að sitja sem fastast eftir að í ljós kom að hann nýtur ekki stuðnings stjórnarinnar.

Laporta er undir miklum þrýstingi stjórnarmanna um að segja af sér eftir að í ljós kom að þorri meðlima Barcelona vildu hann á brott. Þannig vilja 60% þeirra 40,000 sem höfðu atkvæðisrétt fá Laporta á brott, en lögum samkvæmt hefði hann átt að segja af sér ef hlutfallið hefði náð 67%






Fleiri fréttir

Sjá meira


×