Fótbolti

Ósætti um kaupverðið á Ronaldinho?

NordicPhotos/GettyImages

Ítalskir fjölmiðlar greina frá því í dag að fyrirhuguð félagaskipti Ronaldinho hjá Barcelona yfir til AC Milan gætu verið komin í salt vegna verðmiðans sem spænska félagið hefur skellt á Brasilíumanninn.

Þannig segir Corriere della Sera að Barcelona viji fá hátt í 4,2 milljarða fyrir leikmanninn, en AC Milan er aðeins sagt vera tilbúið að greiða um 2,4 milljarða fyrir hann.

Ronaldinho er sagður hafa áhuga á að flytja til Mílanó, en bróðir hans og umboðsmaður er hljóður yfir þessum nýjustu tíðindum af kaupverðinu og segir nægan tima til stefnu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×