Fótbolti

Vill frekar vinna Evrópubikarinn

AFP

ramherjinn Alessandro del Piero hjá Juventus sló í gegn í gær þegar hann skoraði bæði mörk Juventus í 2-0 sigri liðsins á Real Madrid á útivelli í Meistaradeildinni.

Del Piero er bjartsýnn á gengi Juventus í Meistaradeildinni eftir sigurinn góða í gær.

"Það er erfitt að segja hvort mann langar meira að vinna ítölsku deildina eða Meistaradeildina. Ég held að það væri betra að vinna sigur í Evrópukeppninni. Því fylgja alveg sérstakar tilfinningar. En við munum reyna að vinna sigur á báðum vígstöðvum," sagði framherjinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×