Fótbolti

Eiður Smári í byrjunarliði Barcelona

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Eiður Smári verður í eldlínunni í risaslag Real Madrid og Barca í kvöld.
Eiður Smári verður í eldlínunni í risaslag Real Madrid og Barca í kvöld. Nordic Photos / AFP

Eiður Smári Guðjohnsen er í byrjunarliði Barcelona sem mætir Real Madrid á Santiago Bernabeu í Madrid í kvöld.

Leikir liðanna, sem gangast undir nafninu „El clasico" hafa oft verið þýðingamiklir leikir en getur vart talist það nú enda Real Madrid þegar búið að tryggja sér meistaratitilinn á Spáni.

Það er engu að síður spilað upp á stoltið og því ekki við öðru að búast en að það verði barist til síðasta blóðdropa.

Eiður er á miðju Barcelona í fjarveru Deco sem er meiddur rétt eins og Samuel Eto'o. Lionel Messi er hins vegar í byrjunarliðinu og er í sókninni með Bojan og Thierry Henry.

Real Madrid: Casillas; Ramos, Pepe, Heinze, Marcelo; Diarra, Gago, Guti, Sneijder; Robben, Raul.

Barcelona: Valdes; Zambrotta, Puyol, Marquez, Abidal; Toure Yaya, Eiður Smári, Xavi; Messi, Bojan, Henry.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×