Fyrsta tap Hamars Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. nóvember 2008 21:27 Ingibjörg Elva skoraði 21 stig fyrir Keflavík í kvöld.
Hamar tapaði í kvöld sínum fyrsta leik í Iceland Express deild kvenna er liðið tapaði fyrir Keflavík á heimavelli, 90-76. Hamar er þó enn í efsta sæti deildarinnar með tíu stig en Haukar eru nú einnig með tíu stig eftir sigur á Grindavík í kvöld, 66-58. Þá vann KR sigur á Val, 59-57, en allir leikir kvöldsins unnust á útivelli. Jafnræði var með liðum Hamars og Keflavíkur í fyrsta leikhluta en eftir það tóku Keflvíkingar öll völd í leiknum. Staðan í hálfleik var 52-36, Keflavík í vil. Birna Valgarðsdóttir skoraði 22 stig fyrir Keflavík og tók tíu fráköst. Ingibjörg Elva Vilbergsdóttir var með 21 stig og tíu fráköst. Svava Ósk Stefánsdóttir átti einnig góðan leik en hún skoraði tólf stig, gaf níu stoðsendingar og tók sjö fráköst. LaKiste Barkus var stigahæst hjá Hamar með 25 stig, Íris Ásgeirsdóttir skoraði nítján stig og Hafrún Hálfdánardóttir sautján auk þess sem hún tók þrettán fráköst. Haukar náðu tíu stiga forystu í öðrum leikhluta gegn Grindavík í kvöld og létu forystuna aldrei af hendi. Ragna Brynjarsdóttir skoraði 22 stig og tók sextán fráköst og Kristrún Sigurjónsdóttir skoraði 20 stig fyrir Hauka. Hjá Grindavík var Petrúnella Skúladóttir stigahæst með tólf stig. Spennan var mikil í leik Vals og KR. KR byrjaði betur í leiknum og var með frumkvæðið í fyrri hálfleik en staðan í hálfleik var 32-29, KR í vil. Valur náði svo yfirhöndinni í þriðja leikhluta og var með forystuna þegar sex mínútur voru til leikslota, 55-49. Þá skoraði KR átta stig í röð en Valur jafnaði metin þegar tæpar fimm mínútur voru til leiksloka. Aðeins ein karfa var skoruð á síðustu fjórum mínútum leiksins og reyndist það sigurkarfa leiksins. Guðrún Þorsteinsdóttir var þar að verki. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir fór mikinn í liði KR og skoraði 31 stig. Signý Hermannsdóttir var stigahæst hjá Val með 20 stig en hún tók einnig sextán fráköst. Lovísa Guðmundsdóttir skoraði fimmtán stig og tók þrettán fráköst.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Það var erfitt að fela vonbrigðin“ Sport Bannar eiginkonurnar ef þeir vinna leikinn Fótbolti Íris fer á Ólympíuleikana í París Sport „Miklar tilfinningasveiflur sem tóku við“ Handbolti Rekinn í vetur en ráðinn á ný Körfubolti „Ég bað um að taka fimmta vítið“ Sport Fyrrum heimsmeistari skotinn til bana Sport Disney stjórinn að kaupa fótboltafélag með eiginkonunni Fótbolti Andrea svekkir sig ekki á mannlegum mistökum Sport KKÍ gefst upp á GameDay kerfinu Körfubolti Fleiri fréttir Kemba Walker hættur og verður þjálfari hjá Hornets Jontay Porter fer fyrir dóm og mun játa veðmálasvindlið KKÍ gefst upp á GameDay kerfinu Rekinn í vetur en ráðinn á ný Lakers ræður reynslubolta með Reddick LeBron James samdi við Lakers og spilar við hlið sonarins Höttur fær annan Dana til sín: „Vona að þið séuð ekki komin með ógeð af dönskum leikmönnum“ „Við gáfum Bronny ekkert, hann vann fyrir þessu“ „Ég kæmi ekki inn í þetta lið nema með það hugarfar að vinna báða titlana“ Pabbinn svekktur eftir að Klay valdi Mavericks yfir Lakers Enginn vildi tala við hann en nú fær hann rúma þrjá milljarða Gerir nýjan 44 milljarða risasamning við Boston Þrír Íslendingar í úrvalsliðum Norðurlandamótsins LeBron vill fá DeMar DeRozan til Lakers Umtalað samband við eldri konu talið hafa spillt fyrir NBA meistarar Boston Celtics til sölu Hilmar Smári semur við Stjörnuna Klay Thompson að semja við Dallas Mavericks LeBron James slítur samningi við Lakers og Chris Paul fer til Spurs „Aðdáendur liðsins munu kynnast mínum gríska anda og orku“ Paul George gerir fjögurra ára samning við Philadelphia 76ers Reese í sögubækurnar og Clark með enn einn stórleikinn Almar skoraði fjörutíu stig þegar Ísland varð Norðurlandameistari Faðir og sonur munu stýra syni og bróður Segir að Golden State banni Wiggins að spila á ÓL LeBron stoltur af syninum: „Arfleið!“ James feðgarnir sameinast í liði Los Angeles Lakers Álftanes fær mikla hetju úr Texas háskólanum Kínverski risinn sem enginn getur stöðvað Tveir Frakkar valdir fyrstir í nýliðavali NBA Sjá meira