Taplausir KR-ingar völtuðu yfir Skallagrím 4. desember 2008 20:44 Darri Hilmarsson skoraði 23 stig fyrir KR þegar liðið rótburstaði Skallagrím í kvöld Mynd/Stefán
Staðan á toppi Iceland Express deildar karla í körfubolta breyttist ekki í kvöld þegar þrír fyrstu leikirnir í tíundu umferð voru spilaðir. Topplið KR vann tíunda sigur sinn í jafnmörgun leikjum þegar það gjörsigraði botnlið Skallagríms 117-50 í DHL Höllinni í vesturbænum. Þetta var jafnframt tíunda tap Borgnesinga í deildinni. Leikurinn var aldrei spennandi og fengu varamenn KR að spila mikið eins og svo oft áður í vetur. Varamennirninr Darri Hilmarsson og Pálmi Freyr Sigurgeirsson skoruðu 23 stig hvor fyrir KR en Igor Beljanski skoraði 17 stig og hirti 10 fráköst hjá Skallagrími. Grindavík heldur öðru sæti deildarinnar eftir 97-88 útisigur á FSu á Selfossi. Páll Axel Vilbergsson skoraði 29 stig og hirti 7 fráköst fyrir Grindavík og Þorleifur Ólafsson var með 18 stig og 9 fráköst. Vésteinn Sveinsson skoraði 23 stig fyrir FSu, Sævar Sigurmundsson skoraði 22 stig og hirti 7 fráköst og Thomas Viglianco skoraði 19 stig og hirti 13 fráköst. Loks vann Snæfell góðan sigur á Stjörnunni 87-83 í Stykkishólmi. Slobodan Subasic skoraði 26 stig, gaf 8 stoðsendingar og hirti 6 fráköst fyrir Snæfell, Sigurður Þorvaldsson skoraði 20 stig, Jón Jónsson 17 og Hlynur Bæringsson var með 13 stig, 9 fráköst og 7 stoðsendingar. Justin Shouse skoraði 29 stig, hirti 9 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Stjörnuna, Fannar Helgason var með 16 stig og 8 fráköst og þeir Kjartan Kjartansson og Jovan Zdravevski skoruðu 14 stig hvor. KR hefur 20 stig á toppi deildarinnar, Grindavík 18 og Tindastóll 12 í þriðja sætinu og á leik til góða annað kvöld. Keflavík, Njarðvík og Snæfell hafa 10 stig, en suðurnesjaliðin eiga leik til góða.
Dominos-deild karla Mest lesið Hákon um markið: Hann sá mig ekki en heyrði í mér Fótbolti Hvetja stuðningsfólk Man. Utd til að mæta í svörtu því félagið sé „að deyja“ Enski boltinn Hákon tryggði Lille jafntefli á Westfalenstadion Fótbolti Declan Rice eftir sjö marka kvöld: Höfum verið að spila svona allt tímabilið Fótbolti Benoný Breki áfram á skotskónum Enski boltinn Brahim Diaz tryggði Real Madrid sigur á nágrönnunum Fótbolti Arsenal menn í miklu markastuði í Hollandi Fótbolti „Þér að kenna ef við vinnum ekki deildina“ Enski boltinn Valskonur með fullt hús og markatöluna 15-1 Íslenski boltinn Þriðja meðgangan á fimm árum: Skórnir komnir á hilluna fyrir fullt og allt Handbolti Fleiri fréttir „Maður er svo trúgjarn, maður trúir á deja vu“ Uppgjör: Stjarnan-Hamar/Þór 72-78 | Þrenna hjá Beeman í mikilvægum sigri Kyrie Irving skoraði með slitið krossband Serena Williams orðin eigandi fyrsta kanadíska WNBA-liðsins „Urðum okkur sjálfum til skammar“ Martin og félagar gulir og glaðir þriðja leikinn í röð „Niðurdrepandi og leiðinlegar fréttir“ Butler gleymdi að mála og greiða leiguna Meistarar mætast í bikarnum Jón Otti körfuboltadómari fallinn frá Ómetanleg vinátta: „Við munum lifa á þessu vel og lengi“ „Gæti skilið á milli fyrir KR hversu góður hann er“ „Gefur okkur mikið sjálfstraust“ Þór ekki í teljandi vandræðum með Val Elvar Már öflugur í enn einu tapi Maroussi Grindavík lagði Aþenu í botnslagnum Uppgjörið: Keflavík - Haukar 96-105 | Aftur sóttu Haukar sigur í Sláturhúsið Tryggvi og félagar fjarlægjast fallsvæðið Kane minnir Pavel á Craion: „Vildu bara vinna“ Borche: Dómararnir sjá það sem þeir sjá Kári: Bara negla þessu niður „Held áfram nema ég verði rekinn“ „Ánægður með hvernig menn brugðust við mótlætinu“ Uppgjörið og viðtöl: KR - Höttur 97-75 | KR-ingar náðu í mikilvæg stig og felldu um leið Hattarmenn Uppgjör og viðtöl: Valur - ÍR 90-87 | Valsmenn styrktu stöðu sína Uppgjörið: Hamar/Þór - Tindastóll 77-72 | Mikilvægur sigur heimaliðsins Embiid frá út leiktíðina „Óafsakanlegt hvernig við mættum til leiks“ „Tilefnið stórt og sterkt að landa sigri“ „Ákveðnir í því að gefa þeim enga von“ Sjá meira
Uppgjörið og viðtöl: KR - Höttur 97-75 | KR-ingar náðu í mikilvæg stig og felldu um leið Hattarmenn