Fótbolti

Huntelaar spenntur fyrir Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Klaas-Jan Huntelaar, leikmaður Ajax og hollenska landsliðsins.
Klaas-Jan Huntelaar, leikmaður Ajax og hollenska landsliðsins. Nordic Photos / Getty Images

Hollendingurinn Klaas-Jan Huntelaar segist vera afar spenntur fyrir því að ganga til liðs við Real Madrid.

Hann hefur verið orðaður við félagið en hann fór á kostum með Ajax á nýliðnu tímabili í hollensku úrvalsdeildinni og skoraði 33 mörk í 34 leikjum.

Þrír landsliðsfélagar Huntelaar, þeir Ruud van Nistelrooy, Wesley Sneijder og Arjen Robben, leika allir með Real Madrid og bera félaginu góða söguna.

„Eins og er veit ég ekki hvar ég verð á næsta tímabili. Það hefur mikið verið rætt um að ég fari til Real Madrid og það væri mjög spennandi því það er frábært félag," sagði Huntelaar.

„Það eina sem ég veit að ef Real Madrid eða eitthvað annað félag vill fá mig verður það að ræða við Ajax fyrst. En Real Madrid er eitt stærsta félag heims og öllum leikmönnum langar til að spila með þeim stærstu og vinna titila."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×