Fótbolti

Eiður tryggði Barcelona sigur á Betis

AFP

Eiður Smári Guðjohnsen var hetja Barcelona í kvöld þegar hann skoraði sigurmark liðsins í 3-2 sigri á Real Betis í spænsku úrvalsdeildinni.

Samuel Eto´o kom Börsungum í 2-0 með mörkum í fyrri hálfleik, en Betis náði að koma til baka og jafna leikinn eftir rúmlega klukkustundarleik.

Eiður Smári kom svo inn sem varamaður fyrir Seydou Keita á 74. mínútu og skoraði sigurmark liðsins með laglegum hætti þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Þetta var fyrsta mark Eiðs fyrir Barcelona í deildinni á leiktíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×