Fótbolti

Eto'o áfram hjá Barcelona

Elvar Geir Magnússon skrifar
Samuel Eto'o.
Samuel Eto'o.

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, sagði á blaðamannafundi í kvöld að sóknarmaðurinn Samuel Eto'o væri ekki á förum. Guardiola leggur mikla áherslu á að halda Eto'o sem hefur verið orðaður við önnur lið.

Hann segist hafa rætt við Eto'o og að leikmaðurinn vilji vera áfram hjá Barcelona. Ronaldinho og Deco hafa yfirgefið herbúðir Börsunga síðan Guardiola tók við liðinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×