Fótbolti

Villa skaut Valencia á toppinn

David Villa
David Villa AFP

David Villa skoraði bæði mörk Valencia í kvöld þegar liðið náði toppsætinu í spænsku knattspyrnunni með 2-0 útisigri á Malaga. Heimamenn voru á köflum sterkari aðilinn í leiknum en Villa reyndist gestunum þyngdar sinnar virði í gulli í lokin eins og svo oft áður.

Valencia situr í toppsætinu á markamun, rétt á undan Villarreal sem lagði Santander 2-0 í gær. Real Madrid og Atletico eru í þriðja og fjórða sætinu eftir góða soigra í gær og Sevilla er í fimmta sætinu.

Mallorca lagði nýliða Numancia 2-0 í kvöld og Valladolid kom spútnikliði Almeira á jörðina með 2-0 sigri. Þá skildu Recreativo og Bilbao jöfn 1-1.

Þá bárust þær fréttir frá Spáni í kvöld að enski varnarmaðurinn Steve Finnan hjá Espanyol yrði frá keppni næstu þrjár vikurnar eða svo eftir að hafa tognað á læri í fyrsta leik sínum í byrjunarliðinu í gær. Liðið tapaði þá fyrir Sevilla.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×