Fótbolti

Kærkominn sigur Real Madrid

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Félagar Wesley Sneijder fagna marki hans í kvöld.
Félagar Wesley Sneijder fagna marki hans í kvöld. Nordic Photos / AFP
Bernd Schuster, stjóri Real Madrid, gat leyft sér að anda léttar eftir að hans menn unnu 1-0 sigur á Recreativo í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Það var Wesley Sneijder sem skoraði eina mark leiksins á 39. mínútu leiksins. Real Madrid er nú í öðru sæti deildarinnar með 26 stig, tveimur á eftir Barcelona sem á leik til góða.

Liðið í þriðja sæti, Villarreal, tapaði óvænt fyrir Valladolid á heimavelli í kvöld, 3-0. Valladolid er í sjöunda sæti deildarinnar með sextán stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×