Sport

Nadal í sögubækurnar

AFP

Spænski tenniskappinn Rafael Nadal komst í sögubækurnar í dag þegar hann sigraði á Monte Carlo Masters mótinu fjórða árið í röð. Hann lagði besta tennisleikara heims Roger Federer í úrslitaleik 7-5 og 7-5 á leirnum.

Nadal er fyrsti maðurinn til að vinna mótið fjögur ár í röð í nútímatennis, en það var síðast Nýsjálendingurinn Anthony Wilding gerði það síðast árið 1914.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×