Fótbolti

Flugeldasýning í gangi á Nývangi - Eiður á skotskónum

Eiður Smári og Messi hafa báðir skorað í leiknum
Eiður Smári og Messi hafa báðir skorað í leiknum AFP

Barcelona er að bjóða upp á sannkallaða flugeldasýningu á heimavelli sínum Nývangi í kvöld. Liðið hefur yfir 5-1 gegn Atletico í stórleik kvöldsins þegar flautað hefur verið til hálfleiks.

Eiður Smári skoraði fimmta mark Barcelona eftir innan við hálftíma leik. Leikurinn er sýndur beint á Stöð 2 Sport en hann hófst klukkan 20.

Rafael Marquez skoraði fyrsta markið með skalla á 4. mínútu, Samuel Eto´o bætti við öðru úr víti á 6. mínútu, Leo Messi bætti við öðru marki á 8. mínútu en gestirnir minnkuðu muninn á 13. mínútu.

Hafi einhver haldið að Atletico ætlaði að vinna sig inn í leikinn eftir það átti annað eftir að koma í ljós, því Samuel Eto´o var aftur á ferðinni á 18. mínútu og Eiður Smári skoraði svo eftir stangarskot Iniesta á 28. mínútu.

Reyndar hafa Börsungar átt fleiri skot í stangirnar á marki Atletico í hálfleiknum og þá hefur Leo Messi komist tvisvar inn fyrir vörnina en ekki náð að skora.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×