Fótbolti

Messi tryggði Barcelona sigur

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Lionel Messi skoraði sigurmark Barcelona í kvöld.
Lionel Messi skoraði sigurmark Barcelona í kvöld. Nordic Photos / AFP

Barcelona vann í kvöld 1-0 sigur á Benidorm í síðari viðureign liðanna í 32-liða úrslitum spænsku bikarkeppninnar. Fyrri leik liðanna lauk einnig með 1-0 sigri Börsunga sem eru komnir áfram í 16-liða úrslitin.

Eiður Smári Guðjohnsen var í byrjunarliði Barcelona í kvöld en var skipt af velli á 61. mínútu fyrir Xavi. Lionel Messi skoraði sigurmark leiksins á 86. mínútu.

Villarreal datt úr keppni eins og búist var við en liðið gerði 1-1 jafntefli gegn neðrideildarliðinu Poli Ejido í kvöld sem vann 5-0 sigur í fyrri leiknum.

Annars var lítið um óvænt úrslit í leikjum kvöldsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×