Enski boltinn

United, Real og Barca á eftir Benzema

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Karim Benzema fagnar marki með Lyon.
Karim Benzema fagnar marki með Lyon. Nordic Photos / AFP

Umboðsmaður Karim Benzema segir að forráðamenn Lyon hafi rætt við Manchester United, Real Madrid og Barcelona um mögulega sölu á framherjanum Karim Benzema.

„Ég veit að Lyon hefur rætt við öll þessi félög sem hafa mikinn áhuga á að fá Benzema fyrir næsta tímabil," sagði Karim Djaziri, umboðsmaður Benzema.

Lyon hefur hingað til hafnað öllum tilboðum sem borist hafa í Benzema en það gæti verið erfitt að halda honum hjá félaginu í eitt tímabil til viðbótar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×