Íslenski boltinn

Kvennalið Vals styrkir sig

Elvar Geir Magnússon skrifar
Valsstúlkur hafa fengið leikmann frá Aftureldingu.
Valsstúlkur hafa fengið leikmann frá Aftureldingu.

Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki hafa fengið liðsstyrk. Sophia Mundy er gengin til liðs við félagið frá Aftureldingu en hún hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu hér á landi.

Mundy er bandarísk, fædd 1985 og gekk til liðs við Aftureldingu þegar liðið lék í 1. deildinni í fyrra. Hún hjálpaði liðinu að komast upp í Landsbankadeildina og hefur skorað 15 mörk í 28 leikjum fyrir liðið.

Á móti hefur Valur ákveðið að lána þrjár efnilegar knattspyrnukonur í Aftureldingu út tímabilið. Það eru þær Anna Garðarsdóttir, Andrea Ýr Gústavsdóttir og María Rós Arngrímsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×