Íslenski boltinn

Afturelding vann Stjörnuna

Elvar Geir Magnússon skrifar
Afturelding vann sterkan sigur á Stjörnunni.
Afturelding vann sterkan sigur á Stjörnunni.

Afturelding vann sannfærandi sigur á Stjörnunni 4-2 í eina leik kvöldsins í Landsbankadeild kvenna. Afturelding komst fjórum mörkum yfir en Stjarnan minnkaði muninn með tveimur mörkum í lokin.

Agnes Þóra Árnadóttir skoraði tvö af mörkum Aftureldingar en hin mörk liðsins skoruðu Mist Edvardsdóttir og Elín Svavarsdóttir. Karin Sendel og Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir skoruðu mörk Stjörnunnar.

Stjarnan er í fjórða sæti með 20 stig en liðið hefur tapað tveimur leikjum í röð. Afturelding er í fimmta sætinu, þremur stigum á eftir Stjörnunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×