Sport

Hirvonen í efsta sæti

Elvar Geir Magnússon skrifar
Hirvonen tók stökk í Tyrklandi og leiðir nú í baráttunni um heimsmeistaratitilinn.
Hirvonen tók stökk í Tyrklandi og leiðir nú í baráttunni um heimsmeistaratitilinn. Nordicphotos/getty images

Mikko Hirvonen frá Finnlandi vann Tyrklandsrallið í morgun og er kominn í efsta sæti á stigalista ökumanna í baráttunni um heimsmeistaratitilinn. Hirvonen ekur á Ford en landi hans, Jari-Matta Latvala, varð annar á Ford.

Hirvonen er efstur í heildarstigakeppninni með 59 stig en Sebastian Loeb, ríkjandi heimsmeistari, er með 56 stig. Loeb ekur á Citroen og varð þriðji í keppninni í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×