Sport

Federer í úrslit á Wimbledon sjötta árið í röð

NordcPhotos/GettyImages

Svisslendingurinn Roger Federer tryggði sér í dag sæti í úrslitaleiknum á Wimbledon mótinu í tennis sjötta árið í röð þegar hann vann sannfærandi 6-3, 7-6 (7-3) 6-4 sigur á Marat Safin í undanúrslitunum.

Federer kláraði leikinn á 41 mínútu og mætir Rafael Nadal eða Rainer Schuettler í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Federer hefur ekki tapað í síðustu 65 leikjum sínum á grasvöllum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×