Fótbolti

Valencia vann heimaleikinn naumlega

Elvar Geir Magnússon skrifar
David Villa skoraði eitt mark í gær.
David Villa skoraði eitt mark í gær.

Í gær fór fram fyrri viðureign Valencia og Real Madrid um hinn svokallaða Ofurbikar á Spáni. Þessi viðureign svipar til leiksins um Samfélagsskjöldinn í enska boltanum en í stað eins leiks er leikið heima og að heiman.

Í gær var heimaleikur Valencia og náði liðið að vinna 3-2. Ruud van Nistelrooy skoraði bæði mörk Real Madrid en Juan Manuel Mata, David Villa og Vicente skoruðu fyrir Valencia.

Síðari leikur liðanna fer fram eftir viku en þá verður leikið á heimavelli Real Madrid.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×